Magnađi Magnarinn....
30. september 2007 klukkan 01:41
Hæ elskur!
Af okkur er allt gott,litli prinsin dafnar vel og er algjör draumur hann sefur bara og drekkur
þarf nánast að vekja hann til að fá brjóstið sitt (annars myndi ég springa er með tvö stór mjólkurbú framan á mér)
hann er algjör engill þetta barn stóri prinsin minn er það nú að vísu líka og er ég að alveg að springa úr gleði
hann ltli minn fær máské nafn nú á komandi helgi eða þann 6 okt,
Við erum búin að fá helling af heimsóknum og allir jafn heillaðir af drengnum
jú jú maður getur ekki annað en verið veikur í þennan engil
fyrir utan þennan eina þarna sem kanski við munum ekki skilja já merkilegt nokk
ennnn við erum nú í sætum málum og hamingjan í toppi :) gaman að sjá hvað hlutirnir breytast
eithvað sem ég hélt að væri tómt rugl en ákvað að taka séns og hvað?
það breytist svo í eithvað gott og frábært :)
Stóri magnarinn þarna á efri hæðinni kann þetta klárlega og ég rak augun í það...
svo ég vitni nú í vin minn louis Armstrong
And I think to my self what a wonderful world
það er nú ekki mikið annað sem ég geri annað en að sinna þessum gullmolum mínum
ætla hinsvegar að reina að koma mér á tónleika þann 10 okt nk, Gummi vinur minn er að gefa
út þriðju plötuna sína "Fuður" og verð ég að mæta er hann mundar gítarinn á mörkinni jájájá
auðvita mæli ég klárlega með því að allir fjölmenni á þessa skemtun
þá sjaldan maður lyftir sér upp eða á það bara við um mig? neeei varla og auðvitað allir sem einn
að fjárfesta í plötunni allavega mun "brúneygða þyrnirósin" mæta.....
Nú annars urðu Valsarar meistarar í dag ju auðvitað betra en að FH hefði neglt það,en en Mitt lið ÍA
tók þriðja sætið sem er bara nokkuð nett hjá þeim til hamingju með það ekkert annað í fréttum sem ætti pláss á veraldarvefnum ?? nei varla ekki úr þessu.....
jææææja ætla nú að fara koma mér í svefn þetta er komið gott
Gangið á guðsvegum en ekki á moldinni.....
PS: Eva mín góðir hlutir gerast hægt og stundum þarf enga þriggja daga reglu eða aðrar reglur
eins og ég sagði hér að ofan "stóri magnarinn kann þetta" þó hann hafi lagt fyrir okkur nokkur mis
erfið próf þá kemur tían og gullið á endanum ekki satt?? þó að nían hafi bara komið hja mér þa færð þú tíu
elska þig og sakna þín...........................................xx
Maren Rós Steindórsdóttir

gaman að kíkja á ykkur í dag.
drengurinn er algjört bjútí ;) Hefðum alveg viljað taka hann bara með heim :)